Persónuverndarstefna Loop & Round
Persónuverndarstefna þessi lýsir því hvernig Loop & Round vinnur með persónuupplýsingar þeirra sem kaupa prjónauppskriftir, heimsækja vefinn eða hafa samband.
Ábyrgðaraðili
Loop & Round
Kristbjörg Olsen
Bakkastaðir 79b
112 Reykjavík
Ísland
Netfang: loopandround@loopandround.com
Hvaða upplýsingar vinnur Loop & Round með?
Loop & Round kann að vinna með nafn og netfang kaupanda, upplýsingar um keypta vöru og samskipti sem berast vegna pantana eða fyrirspurna.
Upplýsingarnar eru notaðar til að afhenda vörur, veita þjónustu, svara fyrirspurnum og uppfylla skyldur samkvæmt lögum. Þær eru ekki seldar eða notaðar til markaðssetningar í tölvupósti án samþykkis.
Loop & Round fær ekki aðgang að fullum greiðslukortaupplýsingum kaupanda.
Greiðslur
Kaup og greiðslur fara fram í gegnum Lemon Squeezy, sem er formlegur söluaðili viðskiptanna (merchant of record). Lemon Squeezy annast meðal annars greiðsluafgreiðslu, skatta, kvittanir, niðurhalstengla, endurgreiðslur og varnir gegn svikum.
Um vinnslu Lemon Squeezy gildir persónuverndarstefna fyrirtækisins.
Hýsing og tæknilegar upplýsingar
Vefurinn er hýstur hjá Cloudflare. Við heimsókn á vefinn kunna Cloudflare og aðrir nauðsynlegir þjónustuaðilar að vinna með takmarkaðar tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu og upplýsingar um vafra og tæki, til að birta vefinn og tryggja öryggi hans.
Sumir þjónustuaðilar kunna að vinna með upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins. Slík vinnsla skal fara fram á grundvelli viðurkenndra heimilda samkvæmt persónuverndarlögum.
Varðveisla upplýsinga
Upplýsingar eru ekki varðveittar lengur en þörf er á. Gögn sem nauðsynleg eru vegna bókhalds, svo sem söluyfirlit og upplýsingar um greiðslur og endurgreiðslur, eru varðveitt í samræmi við íslensk lög, að jafnaði í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.
Öðrum samskiptum er eytt þegar ekki er lengur þörf á þeim.
Vefkökur
Loop & Round notar ekki vefkökur til sérsniðinna auglýsinga. Nauðsynlegar vefkökur eða sambærileg tækni kunna að vera notaðar vegna virkni, öryggis og greiðsluafgreiðslu.
Réttindi þín
Þú átt eftir atvikum rétt á að fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga þinna, aðgang að þeim, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu.
Beiðnir má senda á loopandround@loopandround.com. Einnig er hægt að senda kvörtun til Persónuverndar.
Stefnan kann að verða uppfærð ef starfsemi, þjónustuaðilar eða lög breytast.
Loop & Round Privacy Policy
This Privacy Policy explains how Loop & Round processes personal data relating to people who purchase knitting patterns, visit the website, or contact Loop & Round.
Data controller
Loop & Round
Kristbjörg Olsen
Bakkastaðir 79b
112 Reykjavík
Iceland
Email: loopandround@loopandround.com
What information does Loop & Round process?
Loop & Round may process a purchaser’s name and email address, information about products purchased, and messages received about orders or other inquiries.
This information is used to deliver products, provide customer service, respond to inquiries, and meet legal obligations. It is not sold or used for email marketing without consent.
Loop & Round does not have access to a purchaser’s full payment card details.
Payments
Purchases and payments are processed through Lemon Squeezy, the merchant of record for each transaction. Lemon Squeezy handles payment processing, taxes, receipts, download links, refunds, and fraud prevention.
Lemon Squeezy’s processing is governed by its Privacy Policy.
Hosting and technical information
The website is hosted by Cloudflare. When you visit the website, Cloudflare and other essential service providers may process limited technical information, such as your IP address and information about your browser and device, to deliver and secure the website.
Some service providers may process information outside the European Economic Area. Where applicable, this processing must rely on a recognized legal basis under data protection law.
Data retention
Information is not kept longer than necessary. Records required for accounting purposes, including sales records and information about payments and refunds, are retained in accordance with Icelandic law, generally for seven years after the end of the relevant financial year.
Other correspondence is deleted when it is no longer needed.
Cookies
Loop & Round does not use cookies for personalized advertising. Essential cookies or similar technologies may be used for website functionality, security, and payment processing.
Your rights
Depending on the circumstances, you may have the right to information about the processing of your personal data, access to that data, correction, deletion, or restriction of processing.
Requests may be sent to loopandround@loopandround.com. You may also submit a complaint to the Icelandic Data Protection Authority, Persónuvernd.
This policy may be updated if the business, service providers, or applicable laws change.
